Testing, testing
Virkar þetta ? Virkar þetta ?
Já, þetta virkar. Já, þetta virkar ?
Virka ég ? Virka ég ?
Það er spurning… kemur vonandi í ljós á næstu dögum !
Lasarus
Síðan síðast er ég búin að vera með stöðuga hitavellu sem hefur komið í veg fyrir ræktarferðir og svo er mataræðið ennþá í rugli af því að ég er í prófum og á svo bágt
Búin að ákveða að taka danskt sumar og byrja því á danska um leið og ég kem heim úr utanlandsferðinni minni sem ég er nb að fara í eftir aðeins 12 daga
Danskt mataræði hefst sem sagt þann 10.júní næstkomandi og er móðir mín búin að ákveðja að joina.
Veit ekki alveg hvort að ég ætla að taka allan pakkann og mæta líka í vigtun í garðabæinn, er búin að vera að leita að vigtarbókinn minni síðan sumarið 2005 en enn sem komið er þá er hún týnd.
Ætla að halda áfram að læra…
Letistrumpur
Er búin að vera hrikalega löt í dag, hef ekki einu sinni nennt í ræktina… skamm skamm.
Tók mér samt tíma í að búa til matseðla fyrir næstu vikur þannig að það ætti að vera auðvelt að detta í heilsugírinn. Er búin að vera í smá afgosun í dag, fékk mér bara vatn þegar ég uppgötvaði að það var ekkert pepsi max í húsinu. Er alveg svakalegur pepsi maxisti, sérstaklega þegar ég þarf að vera að læra en núna er það bara pjúra vatn og svo ávaxtatoppur !!!
Mætti í ræktina á föstudaginn svona til að tékka hvort að orkan væri komin aftur og sem betur fór þá var hún á sínum stað.
Föstudagsrækt: 10 mínútur á skíðavél, lyfti svo fyrir allan skrokkinn og mér tókst að gera 10x í röð á þarna helv… tækinu þar sem maður lyftir hnjánum upp að brjósti
Tók svo 15 mín í stigavélinni í lokin og var næstum dauð.
Sem sagt bara þriggja skipta ræktarvika sem er ekki nógu gott, stefni á 6 daga í næstu viku ásamt breyttu mataræði og massa lærdómi… stuð framundan ![]()
Slappelsi
Ákvað í einhverju paranojukasti að læsa öllum síðum sem innihéldu eitthvað varðandi þyngd og annað. Ef einhver les þessa síðu þá er minnsta málið að kommenta bara og ég sendi lykilorð um hæl (Gella: það er nafnið mitt með litlum stöfum plús endingin us)
Er búin að vera með hitavellu síðan á sunnudaginn og fór því heldur illa að ráði mínu með því að mæta í ræktina á mánudaginn. Var svo uppgefin um kvöldið þegar ég fór að sofa að ég svaf í 12 tíma. Var svo slöpp í gær auk þess sem ég var að læknastússast þannig að ég fór ekkert í ræktina.
Í morgun hélt ég hins vegar að ég væri orðin mega hress og dreif mig því í ræktina fyrir kl.8. Eftir 15 mín á skíðavélinni þá gafst ég upp, teygði og fór í skólann. Spurning hvort að líkaminn sé að mótmæla frekar röskri byrjun á líkamsræktinni með því að beila á mér ???
Stefni samt á að fara á morgun og lyfta, finnst ómögulegt að klikka svona á planinu þó svo að ég viti vel að maður eigi að hlusta á líkamann sinn og hvíla þegar maður er með hita :S
Annars er ég bara hress, dottin í lærdómsgírinn sem er frekar hentugt þar sem prófin eru nú á næsta leyti og svona
Bætti inn tveimur linkum á skvísur sem eru að sýna mega dugnað, stefni á að lesa fleiri blogg á næstunni og bæta inn fleiri duglegum skvísum. Verð svo bara að vera dugleg að kommenta svo að það kíki kannski einhver hingað inn…
Over and out
Monday Monday
Skrifaði mega færslu á laugardagskvöldið og hún bara datt út, hvarf bara ! Varð nett fúl og hef ekki nennt að skrifa aftur fyrr en núna.
Set inn ræktardagbókina:
Föstudagur: Brenndi í 10 mín á skíðavél að mig minnir og svo lyfti ég fyrir allan kroppinn (þyngdi í öllum tækjum
Þar sem ég þurfti að þjóta í skólann þá varð ekkert úr eftir-lyftinga-brennslu.
Laugardagur: Brennsludagur, 20 mín á stigavél, 15 mín á stólahjóli og 10 mín á skíðavélinni. Tók svo nettar maga-og bakæfingar í lokin.
Mánudagur: Mætti þó svo að ég væri skítdrulluþreytt og að drepast í öxlinni, hrós hrós. Brenndi í 10 mín á stólahjólinu og lyfti svo fyrir allan kroppinn. Inni í planinu mínu er að gera svona hnélyftur þar sem maður hangir og lyftir hnjám að brjósti. Ég var sko ekki par hrifin af því fyrst af því að ég var svo skítléleg. Gat bara lyft tvisvar í röð eða eitthvað en í dag þá gerði ég sko SJÖ í röð, mega stolt af mér
Rakst líka á þjálfarann sem gerði planið mitt og hann fór að spyrja hvort að ég væri dugleg að mæta og ég kom honum mjög á óvart þegar ég sagðist hafa mætt 6 sinnum í síðustu viku. Svo kíkti hann á lyftingablaðið mitt og sá að ég var búinn að þyngja og var bara mjög ánægður með mig
Jebbs, mega gleði í gangi. Stundum er bara gott að vera glaður :)
Ræktuð
Alltaf í ræktinni
Miðvikudagur: Brenndi í 15 mín á stólahjólinu og lyfti svo villt og galið eftir það. Tók svo bara nettar teygjur og brunaði í skólann.
Fimmtudagur: 20 mín á stigvél, stillti á eitthvað bévítans fitubrennsluprógramm og eftir 5 mín þá hélt ég að ég myndi drepast en ég þraukaði nú samt. Skellti mér svo á skíðavél í 7 mínútur, ætlaði að vera lengur en fékk einhvern mega verk í aðra löppina þannig að ég skellti mér á stólahjól og tók 19 mínútur þar. Sem sagt 46 mín af massívri brennslu og alveg mega mikið af svita. Endaði svo á því að gera nokkrar maga- og bakæfingar og fór svo í heita pottinn svona til að byrja að vinna bug á sundfatafóbíunni sem hefur gripið mig með auknum fjölda aukakílóa…
Ég er sem sagt alveg þokkalega dugleg í ræktinni en mataræðið það er svona ekkert mikið að skána svo að ég viðurkenni það nú. En sunnudagurinn er nú ekki kominn enn þannig að ég er þannig lagað ekki að svíkja sjálfa mig. Eitt í einu svona eins og sumir segja, ræktin fyrst og svo mataræðið ![]()
Here I go again…
Komin aftur eftir að hafa verið farin í dágóðan tíma. Hef ekki verið í andlegu jafnvægi síðastliðna mánuði og hef þess vegna lítið sem ekkert hreyft mig auk þess sem ég hef étið allt sem að kjafti hefur komið.
Nú er hins vegar komin skýring á þessari andlegu vanlíðan sem og því hvers vegna aukakílóin læðast svona auðveldlega að mér. Ég er með vanvirkan skjaldkirtil !!! Var sem sagt loksins greind í síðustu viku eftir að hafa haft grunsemdir um þetta ástand síðan síðasta sumar.
Þar sem að þessi greining skapar ákveðin tímamót í mínu lífi þá ákvað ég að nota tækifærið og byrja í aftur í ræktinni. Ég mætti í fyrsta skiptið á fimmdudagsmorguninn og er svo búin að mæta þrisvar í viðbót við það. Ég hef hins vegar ekki lagt í mataræðið ennþá en það fer samt svona smá batnandi, ætla að reyna að bæta það smám saman út vikuna og taka það svo með trompi frá og með sunnudeginum.
Hér kemur svo smá yfirlit yfir rækt síðustu daga:
Fimmtudagur: Mætti í ræktina fyrst og fremst til að líta í kringum mig þar sem að ég var að mæta í fyrsta skipti á nýjan stað. Fór á skíðavél í 20mín og pantaði mér svo tíma hjá þjálfara.
Laugardagur: Mætti kl.10 og hitti þjálfara sem setti upp æfingaplan fyrir mig. Planið er að ég mæti 3svar í viku og lyfti og taki þá alla vöðvahópa í einu. Svo á ég að mæta 3svar í viku og brenna í ca. 45mín. Í þetta skiptið brenndi ég í 12 mín á skíðavél, lyfti svo fyrir alla vöðvahópa og brenndi svo í 10 mín í viðbót á skíðavélinni.
Mánudagur: Mætti kl.8.30. Brenndi í 10 mín á skíðavél og fór svo að lyfta. Endaði á 10 mín á skíðavél.
Þriðjudagur: Mætti kl.11. Brenndi í 20 mín á skíðavél og svo í 30 mín á hjóli (ekki svona venjulegt hjól heldur með svona sæti sem er eins og stóll, veit ekki hvað þetta kallast)
Sem sagt, ágætis ræktarárangur hjá sperrunni ![]()
Still here
Get ekki látið síðuna drepast aftur eftir einungis tvær færslur. Er svona aðeins búin að vera að uppfæra hana, þarf svo að laga til í linkunum og svona við tækifæri.
Ég er sem sagt búin að vera í þokkalegu átkasti síðan síðast, bjarti punktuinn er þó sá að ég er búin að mæta alveg tvisvar í ræktina sem verður að teljast gott þar sem ég var algjörlega hætt að hreyfa mig !!!
Er skilin við bootið að borði og sæng eins og er, var komin með ógeð af því og þeirri minnimáttarkend sem það skapaði hjá mér. Ég er fullkomnuarsinni og átti þess vegna mjög erfitt með að taka stöðugt þátt í svona krefjandi tímum án þess þó að ná neinum árangri. Ég veit að það er engum að kenna nema mér en á meðan ég get ekki betur en þetta þá geri ég sjálfri mér ekki að mæta í svona kröfuharða rækt !!!
Í staðinn hef ég keypt mér kort í Nautilus, það var mjög gott tilboð hjá þeim núna í janúar og þar sem að það er ekki mjög langt að fara þá skellti ég mér bara. Tvisvar í viku fer ég svo með vinkonum mínum í smá sprikl sem er ekki einungis gott fyrir líkamann heldur brjálæðislega gott fyrir sálina. Ótrúlegt hvað það gefur manni að hitta sína bestu vini aðeins oftar
Ég er að fara í utanlandsferð í maí og undanfarna mánuði hef ég talið mér trú um það að ég bara yrði að vera komin í kjörþyngd þegar þar að kæmi. Núna eru tæpi 4 mánuðir til stefnu og kjörþyngdin svo sannarlega ekki í sjónmáli. Ég er 91 kg og það er bara ekki fræðilegur að ég verði orðinn 67kg um miðjan maí ! Ég er loksins búin að gera mér grein fyrir þessu og er svona að sætta mig við það. Stefnan er því sett á að vera komin undir 80kg þegar kemur að þessari ferð en draumatalan væri samt 75kg sem er svona frekar fjarri lagi (hey, ég má láta mig dreyma) ! Sem sagt 12kg á 17 vikum, annað eins hefur nú gerst þannig að það þýðir ekkert annað en drífa sig bara af stað með bros á vör ![]()
Dagur þrjú, matur æ heit jú
Well, ég lifði sem sagt af fyrstu tvo dagana og þegar ég steig á vigtina var ég 1,5kg léttari. Ég varð satt að segja fyrir smá vonbrigðum þar sem að ég var búin að lifa tvo nánast matarlausa daga (reiknaðist til að þetta væri svona 360kcal sem mátti borða á dag) !!!
Allavega þá byrjaði ég daginn á að fá mér aloe og svo sjeik í morgunmat en á degi þrjú er sem sagt aloe djúsinn minnkaður, bætt við einu sjeik og 600kcal máltíð og þá er maður kominn í ca. 1080kcal á dag.
Jæja, sjeikinn komst bara ekki allur ofan í mig. Fékk mega ógleðiskast og varð að hafa mig alla til við að gubba ekki helvítis sjeiknum í eldhúsvaskinn. Drakk rúmlega helminginn er restin vildi ekki niður.
Var búin að ákveða að hafa máltíðina mína í hádeginu og stóð við það nema ég var svo gráðug að ég gleymdi töflunum sem ég átti að taka á undan. Fékk mér sem sagt eina grillaða samloku með skinku og osti í stað grófa rúnstykkisins með kjúklingaskinkunni sem ég var búin að ákveða að fá mér. Svo drakk ég einn sykurskertan appelsínu svala (pottó eitthvað sem mátti ekki án þess að það hafi komið fram á leiðbeiningunum) og eina drykkjarjógúrt frá MS. Held að þetta nái nú ekki 600kcal en ég allavega lét þetta duga og var bara södd og sæl.
Svo þegar ég er að keyra heim úr skólanum þá læðist þessi líka púki að mér og segir að mér sé nú svo sem ekkert að líða of vel á þessum kúr og ég hafi nú lítið lést og ég geti þetta hvort eð er ekki og ég sé nú undir svo miklu álagi í skólanum og ble ble ble…
Viti menn, ég kom við hjá Jóa Fel og splæsti í rúnstykki, skinkusalat, franska vöfflu, kókoskúlu og 1/2 lítra af pepsi max. Svo fór ég bara heim og át þetta allt saman og bætti meira að segja við einni brauðsneið til að klára nú salatið örugglega…
Sjitt hvað ég er geðveik þegar kemur að mat, heilinn á mér virkar venjulega fínt, mér gengur vel í skóla og allt sem ég tek mér fyrir hendur gengur mjög vel EN þegar kemur að mat þá er eins og heilinn sé frauðklessa !!!
Held að ég þurfi alvarlega að fara að íhuga 12 spora samtökin sko. Það var viðtal í Vikunni við tvær stelpur sem fóru þá leiðina og þær höfðu loksins fundið sína lausn. Ég kannast við aðra þeirra frá því fyrir mörgum árum og ég get svo svarið það að ég þekkti ekki forsíðumyndina af henni. Nafnið vakti samt athygli mína og þess vegna keypti ég blaðið en það var ekki fyrr en að ég sá gamla mynd inni í blaðinu að ég fattaði að þetta var hún.
Mig langar virkilega að hafa samband við hana og spyrja hana nánar út í þetta en ég veit ekki hvort að ég þori því. Kemur í ljós, kemur í ljós.
Ætla að vigta mig í fyrramálið og læt svo vita hvort að skyndibrjálæðið hafi skilað þessu 1,5 aftur á rassinn á mér !
Sjaldséðir hvítir hrafnar
Það á víst aldrei að segja aldrei… Ég er allavega mætt aftur enn einu sinni en í þetta skipti svona aðallega bara til að bulla fyrir sjálfa mig !
Er enn að stríða við fitupúkann og get lýst því yfir að ég er nú þyngri en nokkru sinni fyrr, reyndar ekki nema 500 grömmum en samt…
Splæsti í smá hreinsunarkúr svona til þess að prufa nú einu sinni hvað fólk á við með hreinsun. Fyrir valinu varð clean and lean frá forever en það er sem sagt 9 daga aloe vera hreinsikúr.
Ég sem sagt byrjaði á þessum ósköpum í morgun og só far þá líður mér bara mjög vel. Er reyndar með smá hausverk en hef ekki búið á dollunni eins og ég hélt að maður gerði þegar maður er í hreinsun :S
Ég mældist 90,7 kílógrömm í morgun og samkvæmt kúrnum þá á ég að vigta mig og mæla á degi þrjú sem myndi þá vera á mánudaginn. Læt vita þá hvað hefur gerst og hvort að dollan hafi skyndilega kallað ![]()